Aðalfundur Nýherja hf. 13. febrúar 2015 - Tillögur


Tillaga um ráðstöfun hagnaðar

Tillaga stjórnar eins og hún kemur fram í áritum á reikninga félagsins:

„Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur út arður til hluthafa árið 2015.  Vísað er til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.“

 

Tillaga um stjórnarlaun

Aðalfundur Nýherja hf. haldinn 13. febrúar 2015 samþykkir að laun stjórnarformanns verði kr. 390.000 á mánuði, stjórnarmanna kr. 130.000 á mánuði.

 

Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum skv. 55. grein hlutafélagalaga

Aðalfundur Nýherja haldinn 13. febrúar 2015 samþykkir heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög.  Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en samningur er gerður.

Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir.

Með samþykkt tillögu þessarar fellur úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á síðasta aðalfundi félagsins.