Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða. Hver flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Tilboðum var tekið fyrir 160 m. kr. á 5,25% flötum vöxtum (verð: 97,8035) í 5 mánaða flokkinn og fyrir 140 m. kr. á 5,25% flötum vöxtum (verð: 97,4283) í 6 mánaða víxilinn. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 4,2 ma. kr. Heildareftirspurn í útboðinu var 680 m. kr., en 44% tilboða var tekið. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 13. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 844 3678. [HUG#1892304]