Í janúar nam fjöldi farþega í millilandaflugi 151 þúsund og jókst um 21% miðað við janúar á síðasta ári. Framboð í millilandafluginu var aukið um 14%. Sætanýtingin var 76,7% og jókst um 6,2 prósentustig í mánuðinum á milli ára og hefur aldrei verið hærri í janúarmánuði.
Fjöldi farþega í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 20 þúsund í janúar og fækkaði um 4%. Framboð í janúar var 2% minna en í janúar á síðasta ári og sætanýting var 66,9% samanborið við 68,9% í janúar 2014. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 33% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar minnkuðu um 4% á milli ára. Seldar gistinætur hjá Flugleiðahótelunum jukust um 31% á milli ára. Herbergjanýting var 67,2% eða 15,8 prósentustigum hærri en í janúar 2014.
MILLILANDAFLUG | JAN 15 | JAN 14 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 150.624 | 124.722 | 21% |
Sætanýting | 76,7% | 70,5% | 6,2 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 590,3 | 519,2 | 14% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | JAN 15 | JAN 14 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 19.637 | 20.384 | -4% |
Sætanýting | 66,9% | 68,9% | -2,1 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 9,1 | 9,3 | -2% |
LEIGUFLUG | JAN 15 | JAN 14 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 87,5% | 100,0% | -12,5 %-stig |
Seldir blokktímar | 1.668 | 2.487 | -33% |
FRAKTFLUTNINGAR | JAN 15 | JAN 14 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 15.011 | 14.207 | 6% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.656 | 7.981 | -4% |
HÓTEL | JAN 15 | JAN 14 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.909 | 22.940 | 0% |
Seldar gistinætur | 15.391 | 11.788 | 31% |
Herbergjanýting | 67,2% | 51,4% | 15,8 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010