Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 17 0206


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 17 0206 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: 

RIKB 17 0206:

Alls bárust 15 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.280 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.630 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,538 (5,25% ávöxtunarkröfu). 

 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 10. febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 11. febrúar 2015.


Attachments

NidurstodurRIKB_6.feb.2015.pdf