Landsbréf – Sparibréf löng, reglubreyting


Hér með tilkynnist að Fjármálaeftirlitið hefur staðfest breytingar á reglum fyrir verðbréfasjóðinn Landsbréf – Sparibréf löng. Breytingarnar felast í því að:

 

  • nafni sjóðsins er breytt í Landsbréf – Sparibréf plús
  • fjárfestingarheimildum er breytt þannig að:
    • lágmark fjárfestingar í ríkistryggðum bréfum fært úr 90% í 50%
    • hámark fjárfestingar í innlánum fært úr 10% í 50%
    • heimild til fjárfestingar í skammtímasjóðum að hámarki 20% bætt við
    • heimild til fjárfestingar í afleiðum að hámarki 10% bætt við
    • takmarkanir á meðallíftíma eignasafns teknar út (var 7+ ár)
  • opnunartími sjóðsins er styttur og verður frá 9:30-14:30 (var til 15:30)
  • heimildir rekstararfélags til töku þóknunar eru rýmkaðar

 

Sjóðfélögum verður send sérstök tilkynning um reglubreytingarnar sem öðlast gildi þegar í stað. Reglur sjóðsins má nálgast á vefsíðu félagsins landsbref.is.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason framkvæmdastjóri Landsbréfa hf. í síma 410 2511.