Í 7. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.000.000 eigin hluti fyrir 27,2 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
9.2.2015 | 15:19 | 500.000 | 27,30 | 13.650.000 | 20.318.412 |
10.2.2015 | 15:29 | 500.000 | 27,05 | 13.525.000 | 20.818.412 |
Samtals | 1.000.000 | 27.175.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014.
TM hefur nú keypt samtals 20.818.412 hluti í félaginu sem samsvarar 99,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 536,7 milljónum króna. TM á nú samtals 2,74% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is