Sjóvá: Ársuppgjör 2014 verður birt 26. febrúar - Kynningarfundur verður 27. febrúar kl. 8.30


Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta ársuppgjör 2014 eftir lokun markaða fimmtudaginn 26. febrúar.

Sjóvá býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á árinu 2014 kl. 8.30 föstudaginn 27. febrúar í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri félagsins mun kynna uppgjörið og svara spurningum.

Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef félagsins www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst.