2,1 milljarða kr. hagnaður TM árið 2014


Á stjórnarfundi 18. febrúar 2015 samþykkti stjórn og forstjóri TM ársreikning félagsins fyrir árið 2014.

Helstu tölur 2014 voru eftirfarandi:

  • Heildarhagnaður ársins var 2.074 m.kr. og hagnaður á hlut var 2,75 kr. (2013*: 2.337 m.kr. og 3,07 kr.)
  • Hagnaður fyrir skatta var 2.417 m.kr. (2013*: 2.593 m.kr.)
  • Framlegð af vátryggingastarfsemi var 117 m.kr. (2013*: 871 m.kr.)
  • Hagnaður af vátryggingastarfsemi var 291 m.kr. (2013*: 1.593 m.kr)
  • Fjárfestingatekjur voru 2.615 m.kr. (2013: 2.094 m.kr.) og ávöxtun fjárfestingaeigna var 10,1% (2013: 8,5%)
  • Samsett hlutfall var 99,0% (2013*: 92,4%)
  • Bókfærð iðgjöld drógust saman um 1,8% á milli ára
  • Eigin iðgjöld drógust saman um 2,0% á milli ára
  • Eigin tjón hækkuðu um 6,9% á milli ára*
  • Rekstrarkostnaður lækkaði um 2,5% á milli ára
  • Eiginfjárhlutfall í lok árs var 44,9%
  • Eigið fé í lok árs var 13.960 m.kr. og arðsemi eigin fjár á 15,3%
  • Handbært fé frá rekstri var 2.283 m.kr. (2013: 3.357 m.kr.)

Helstu tölur fyrir fjórða ársfjórðung 2014 voru eftirfarandi:

  • Heildarhagnaður tímabilsins var 533 m.kr. og hagnaður á hlut var 0,72 kr. (4F 2013*: 432 m.kr. og 0,57 kr.)
  • Hagnaður fyrir skatta var 685 m.kr. (4F 2013*: 446 m.kr.)
  • Framlegð af vátryggingastarfsemi var neikvæð um 215 m.kr. (4F 2013*: jákvæð um 3m.kr.)
  • Tap af vátryggingastarfsemi var 214 m.kr. (4F 2013*: 170 m.kr hagnaður)
  • Fjárfestingatekjur voru 950 m.kr. (4F 2013: 509 m.kr.) og ávöxtun fjárfestingaeigna var 3,6% (4F 2013: 2,0% )
  • Samsett hlutfall var 107,5% (4F 2013*: 99,9%)
  • Bókfærð iðgjöld jukust um 18,1% á milli ára
  • Eigin iðgjöld jukust um 1,1% á milli ára
  • Eigin tjón hækkuðu um 11,6% á milli ára*
  • Rekstrarkostnaður lækkaði um 2,2% á milli ára
  • Handbært fé frá rekstri var 1.087 m.kr. (4F 2013: 1.148 m.kr.)

*Í árslok 2014 breytti félagið um reikningsskilaaðferð við mat á tjónaskuld. Samanburðartölur vegna ársins 2013 hafa tekið breytingum til samræmis við nýja aðferð.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:

„Þrátt fyrir að hagnaður félagsins á árinu 2014 dragist saman milli ára var hann meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hagnaðurinn skýrist að stærstum hluta vegna góðrar afkomu af fjárfestingastarfsemi en vátryggingareksturinn var í járnum, bæði vegna óvenju margra stærri eignatjóna og  aukinnar tíðni ökutækjatjóna.”

Rúmlega 9% raunávöxtun fjárfestinga

Mjög góð afkoma var af fjárfestingastarfsemi félagsins í samanburði við helstu viðmið. Ávöxtun eignasafns TM í heild var rúm 10% á árinu og raunávöxtun því ríflega 9%. Ávöxtun innlendra ríkisskuldabréfa TM var jákvæð um 6% sem skýrist af háu hlutfalli óverðtryggðra ríkisskuldabréfa sem skiluðu góðri ávöxtun, sérstaklega á seinni helmingi ársins. Ávöxtun skráðra innlendra hlutabréfa í eigu TM var um 31% á árinu.

29% vöxtur í erlendum viðskiptum

Á árinu voru stigin markviss skref í að auka vaxtarmöguleika og áhættudreifingu félagsins í vátryggingum. Góður vöxtur var í erlendum viðskiptum á árinu sem telja nú 13% af bókfærðum iðgjöldum. Erlendu viðskiptin  fela að lang mestu leyti í sér þátttöku í tryggingum á erlendum skipaflotum, en afkoma af skipatryggingum var betri en mörg undanfarin ár.

Ánægðustu viðskiptavinir tryggingafélaga eru hjá TM

Þann 5. febrúar síðast liðinn var tilkynnt um niðurstöður mælinga í Íslensku ánægjuvoginni fyrir árið 2014. TM hafði nokkra yfirburði í flokki tryggingafélaga og hlaut 71,3 stig og hækkaði einkunn sína um 2,3 stig milli ára. Þetta var í fjórtánda sinn sem TM hlýtur hæstu einkunn á sínum markaði sem er einstakur árangur enda er TM það íslenska fyrirtæki sem oftast allra hefur hlotið viðurkenninguna.

Breytt uppgjörsaðferð í samræmi við Solvency II

Í kjölfar þess að ákveðið var að meta tjónaskuld félagsins í samræmi við matsreglur Solvency II tilskipunar Evrópusambandsins breytti félagið um reikningsskilaaðferð. Við þessa breytingu færast 323 m. kr. yfir í rekstur til lækkunar á tjónum ársins 2013 og 1.567 m. kr. úr tjónaskuld þann 1.1.2013 eða samtals 1.890 m. kr.

Sterk eiginfjárstaða

Heildareignir TM í árslok 2014 voru 31.078 m.kr. og skuldir 17.118 m. kr. Um 25% fjárfestingaeigna TM eru í ríkisskuldabréfum og handbæru fé og var hlutfall auðseljanlegra eigna 64% sem gerir félagið afar vel í stakk búið til að mæta skuldbindingum sínum. Gjaldþol í lok árs 2014, að teknu tilliti til arðgreiðslu og breyttra uppgjörsaðferða, var 9.741 m.kr. sem er 147% af gjaldþolskröfu sem var 6.612 m.kr. samkvæmt Solvency II.

Tillaga gerð um 4.000 m.kr. arðgreiðslu

Stjórn TM hefur sett fram skýr markmið um áhættuvilja með vikmörkum sem auðveldar stýringu á heildaráhættu félagsins. Markmið um gjaldþolshlutfall samkvæmt áhættuviljanum er 150% og vikmörkin eru 140% til 170%. Arðgreiðslutillaga ársins 2015 byggir á þessum markmiðum og leggur stjórn TM til 4.000 m.kr. arðgreiðslu á árinu 2015. Að auki leggur stjórn til að allt að 1.500 m.kr. verði varið til kaupa á eigin bréfum. Endanleg fjárhæð endurkaupanna mun ráðast af möguleikum félagsins við að finna hagkvæmustu fjármagnsskipan. Ítarleg endurkaupaáætlun verður lögð fyrir á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 12. mars næst komandi.

Stefnt að útgáfu víkjandi skuldabréfs

Gerðar hafa verið ítarlegar greiningar á hagkvæmustu fjármagnsskipan félagsins með tilliti til nýrra gjaldþolsreglna og stefnt er að útgáfu víkjandi skuldabréfs fyrir allt að 2.000 m.kr. á árinu 2015. Útgáfan mun tilheyra eiginfjárþætti 2 (Tier 2) sem miðar að því að gera fjármagnsskipan félagsins sem hagkvæmasta. Gengið hefur verið til samninga við Arctica Finance um ráðgjöf við útgáfu og sölu skuldabréfsins en stefnt er að skráningu þess í Kauphöll á árinu.

Áætlun 2015 gerir ráð fyrir 2,2 milljarða kr. hagnaði fyrir skatta

TM hefur frá skráningu félagsins á markað birt áætlun yfirstandandi rekstrarárs samhliða birtingu ársuppgjörs. Gert er ráð fyrir 8,3% vexti í eigin iðgjöldum en að fjármunatekjur dragist saman á milli ára. Áætlað er að tjónakostnaður hækki um 4,7% og að rekstrarkostnaður hækki um 4,1%. Samsett hlutfall af vátryggingarekstri er áætlað 95,2%.

    Á 2015    2014 
    Jan-des     Breyting          Jan-des 
         
Eigin iðgjöld 12.243.356 8,3% 11.305.381
Fjármunatekjur 2.004.097 -23,4% 2.614.809
  Aðrar tekjur 85.730 5,0% 81.640
Heildartekjur 14.333.183 2,4% 14.001.830
Eigin tjón (     9.060.456) 4,7% (     8.654.400)
Annar rekstrarkostnaður (     3.067.344) 4,7% (     2.930.861)
Heildargjöld (   12.127.800) 4,7% (   11.585.261)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.205.383 -8,7% 2.416.569

 

Kynningarfundur 19. febrúar kl. 8:30

TM býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á árinu 2014 þann 19. febrúar kl. 8:30. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum.

Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/487171189

 

Nánari upplýsingar

Sigurður Viðarsson forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is

 


Attachments

Tryggingamiðstöðin hf. Ársreikningur samstæðunnar 2014.pdf Fréttatilkynning um afkomu TM 2014.pdf