Islandsbanki hf. : Ársuppgjör 2014 birt þann 24. febrúar


Íslandsbanki mun birta ársuppgjör 2014 fyrir opnun markaða þriðjudaginn 24.
febrúar 2015.

Síðar þann dag, þriðjudaginn 24. febrúar kl. 16.00, munu Birna Einarsdóttir,
bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu
bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á
íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi.  Boðið verður upp
á léttar veitingar.

Skrá mig á fjárfestafund á Kirkjusandi.

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður
yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast
skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og
aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir
fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
440 4752.

Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
440 3678.


[HUG#1895951]