Islandsbanki hf. : Ársreikningur 2014


HELSTU NIÐURSTÖÐUR
Árslok 2014
  * Afkoma bankans eftir skatta var jákvæð um 22,8 ma. kr. árið 2014 samanborið
    við 23,1 ma. kr. árið 2013.
  * Arðsemi eftir skatta var 12,8% á árinu samanborið við 14,7% árið 2013. Góð
    afkoma þrátt fyrir hækkun eigin fjár.
  * Eiginfjárhlutfall var áfram sterkt eða 29,6% (2013: 28,4%) og
    eiginfjárhlutfall A (Tier 1) var 26,5% (2013: 25,1%)
  * Hreinar vaxtatekjur voru 27,1 ma. kr. (2013  28,4 ma. kr.), sem er lækkun um
    4,7% milli ára. Vaxtamunur var 3,0% (2013: 3,4%) og hefur nú náð stigi sem
    búist er við að haldist til lengri tíma.
  * Hreinar þóknanatekjur voru 11,5 ma. kr. á árinu (2013: 10,4 ma. kr.).
    Hækkunin er 10% á milli ára og má að mestu leyti rekja til
    viðskiptabankasviðs og dótturfélaga bankans.
  * Kostnaðarhlutfall var 57,7% (2013: 58,5%). Bankaskattur og
    einskiptiskostnaður er undanskilinn við útreikning kostnaðarhlutfalls.
  * LPA hlutfall var 5,9% (2013: 8%) Þær eignir sem enn eru í endurskipulagningu
    eru hlutfallslega litlar og mun hver um sig hafa lítil áhrif á hlutfallið.
    Hlutfall vanskila umfram 90 daga var 2,5% (2013: 4%).
  * Heildareignir voru 911ma. kr. (2013: 866 ma. kr.).

4F14
  * Hagnaður eftir skatta á 4. ársfjórðungi var 4,6 ma. kr. (4F13: 7,7 ma. kr.).
  * Arðsemi eiginfjár var 9,9% á fjórðungnum (4F13: 19,5%).
  * Hreinar vaxtatekjur voru 6,5 ma. kr. (4F13:  6,5 ma. kr.).
  * Hreinar þóknanatekjur voru 3,0 ma. kr. (4F13: 2,8 ma. kr.) sem er 4% hækkun.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
Árið 2014 var gott ár í rekstri Íslandsbanka. Við höfum unnið markvisst að því
að styrkja grunnreksturinn með kostnaðaraðhaldi og tekjuvexti.
Hagræðingaraðgerðir hafa skilað árangri en kostnaður af reglulegri starfsemi
lækkaði um 2% milli ára, sem er um 4% raunlækkun. Meðal aðgerða sem gripið hefur
verið til eru sameiningar útibúa, endurnýjun samninga við birgja auk þess sem
starfsmönnum hefur fækkað um 240 frá nóvember 2011.
Góður árangur hefur náðst í að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans og er hann
nú stærsti útgefandi sértryggðra skuldabréfa hér á landi. Íslandsbanki gaf út,
fyrstur íslenskra banka, skuldabréf í evrum og stækkaði einnig útgáfu sína í
sænskum krónum.
Traust staða Íslandsbanka hefur vakið athygli erlendis en bæði Euromoney og The
Banker völdu hann  besta bankann á Íslandi. Þá var enginn hærri á bankamarkaði
en Íslandsbanki í Íslensku ánægjuvoginni. Þessi meðbyr hefur skilað sér í
aukinni markaðshlutdeild bankans. Á árinu var mesti útlánavöxtur frá stofnun
bankans en ný lán námu 165 milljörðum króna sem er um 80% aukning frá síðasta
ári. Mestu verðmæti hvers fyrirtækis felast í ánægðum viðskiptavinum. Það er
markmið okkar að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og við
vinnum að því markmiði á hverjum degi.
FJÁRFESTAKYNNING Á KIRKJUSANDI

Í dag kl. 16.00 munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni
Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara
fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans
að Kirkjusandi.  Boðið verður upp á veitingar.



Skrá mig á fjárfestafund á Kirkjusandi.



SÍMAFUNDUR Á ENSKU

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður
yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast
skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og
aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir
fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla,
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.


Nánari upplýsingar veita:
·       Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í
síma: 440 4752
·       Upplýsingafulltrúi -  Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is  og
í síma: 440 3678





[HUG#1896741]

Attachments

Consolidated Financial Statements Íslandsbanki hf.pdf ISB 2014 Financial results announcement.pdf ISB 4Q2014 IR Presentation.pdf