Ársuppgjör Farice fyrir árið 2014

Áframhaldandi rekstrarbati hjá Farice


Í fyrsta sinn síðan 2007 varð rekstrarhagnaður af starfsemi Farice fyrir fjármagnsliði og nam hann 260 þúsund evrum samanborið við 910 þúsund evru tap árið 2013.  EBITDA var 7,6 milljónir evra miðað við 6,7 milljónir árið 2013. Fjármagnskostnaður var 4,1 milljónir evra.  Heildartekjur félagsins námu 13,6 milljónum evra og jukust um 11% frá fyrra ári.  Handbært fé frá rekstri var 5,3 milljónir evra.  Áfram er gert ráð fyrir bata í rekstri og er félagið í skilum með öll lán.

 

Farice er fyrirtæki á sviði gagnaflutninga- og fjarskiptasambanda við útlönd og starfsemi þess er mikilvæg fyrir íslenskt samfélag vegna ábyrgðar á samskiptum Íslands við umheiminn.  Fyrirtækið rekur tvo sæstrengi á milli Íslands og Evrópu og kaupir framhaldssambönd á landi og býr þannig til samskiptakerfi fyrir Ísland sem tengist öðrum samskiptakerfum í helstu tengistöðvum í Evrópu.

 

Eins og á síðasta ári gekk kerfisrekstur félagsins vel og ekkert rof varð á sambandi Íslands við umheiminn.  Endabúnaður sæstrengja félagsins var endurnýjaður á síðasta ári sem margfaldar flutningsgetu kerfisins og félagið því vel í stakk búið til að mæta þörf fyrir aukna bandvídd gagnavera og almennra notenda.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Ómar Benediktsson 585 9701


Attachments

Farice financial statements 2014.pdf