Ársreikningur fagfjárfestasjóðsins Arion Bank Mortgages Institutional Investor Fund (ABMIIF) vegna ársins 2014


Fagfjárfestasjóðurinn ABMIIF sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 3.532 millj. Kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Hrein eign sjóðsins í árslok 2014 nam 46.982 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Ernst & Young ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2014, efnahagi hans 31. desember 2014 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2014, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar um ársreikning ABMIIF veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464.


Attachments

ABMIIF Ársreikningur 2014 SIGN.pdf ABMIIF Ársreikningur 2014 ENSKUR SIGN.pdf