Vátryggingafélag Íslands hf. - Ársuppgjör 2014

Afkoma VÍS á árinu 2014


Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir árið 2014 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 26. febrúar 2015.  Verður ársreikningurinn lagður fyrir aðalfund þann 12. mars 2015 til staðfestingar.

 

Helstu niðurstöður árið 2014

  • Hagnaður ársins eftir skatta nam 1.710 m.kr. eða 0,69 krónum á hlut. (2013: 2.154 m.kr. eða 0,86 á hlut).
  • Iðgjöld ársins námu 16.023 m.kr. (2013: 16.090 m.kr.).
  • Framlegð af vátryggingarekstri var 46 m.kr. (2013: 503 m.kr.).
  • Rekstrarkostnaður lækkar frá fyrra ári og kostnaðarhlutfallið var 21,4% (2013: 21.4%)
  • Samsett hlutfall var 100,7% (2013: 97,8%).
  • Fjármunatekjur námu 2.439 m.kr. (2013: 2.631 m.kr.).
  • Heildareignir í lok ársins námu 46.466 m.kr. (2013: 46.368 m.kr.).
  • Fjárfestingaeignir félagsins námu 34.658 m.kr. (2013: 36.581 m.kr.).
  • Eigið fé félagsins nam 15.956 m.kr. (2013: 16.624 m.kr.).
  • Eiginfjárhlutfall var 34,3% í lok árs.
  • Arðsemi eigin fjár var 10,5% (2013: 13,9%).
  • Á árinu greiddi félagið 1.831 m.kr. í arð til hluthafa.
  • Á árinu keypti félagið eigin bréf í samræmi við endurkaupaáætlun þess að nafnverði 64 m.kr. fyrir 547 m.kr.

 

Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs

  • Hagnaður félagsins eftir skatta nam 804 m.kr. (4F13: 111 m.kr.).
  • Iðgjöld ársins námu 4.170 m.kr. (4F13: 4.061 m.kr.).
  • Framlegð af vátryggingarekstri var 26 m.kr. (4F13: 42 m.kr.).
  • Kostnaðarhlutfall var 20,5% (4F13: 22,0%)
  • Samsett hlutfall var 100,4% (4F13: 100,0%).
  • Fjármunatekjur námu 1.013 m.kr. (4F13: 174 m.kr.).
  • Arðsemi eigin fjár var 20,5% (4F13: 0,7%).

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri

„Hagnaður félagsins á síðasta ársfjórðungi 2014 var góður og skýrist hann af góðri ávöxtun af skuldabréfum og hlutabréfum á tímabilinu. Ávöxtun fjárfestinga félagsins nam 2,94% á fjórðungnum og 7,1% á árinu og telst góð þegar horft er til helstu viðmiða.  Afkoma félagsins af vátryggingastarfsemi var hins vegar undir væntingum á árinu og þá sérstaklega afkoma af eignatryggingum og ökutækjatryggingum.  Samsett hlutfall árið 2014 endaði í 100,7% en árið 2013 var samsett hlutfall 97,8%.  Tjónaþungi ársins er meiri en búist var við í upphafi árs og skýrist hann annars vegar af aukinni tjónatíðni og hins vegar af fjölgun stærri tjóna. Áherslur stjórnenda á einföldun og aukna skilvirkni í rekstri hafa skilað sér í því að rekstrarkostnaður lækkaði á árinu.“

 

Fjárfest í innviðum

Félagið stendur í umfangsmiklum fjárfestingum í innviðum.  Unnið er að innleiðingu á staðlaðri lausn trygginga- og tjónakerfis í samstarfi við danska hugbúnaðarfyrirtækið TIA Technology A/S, sem er leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki fyrir tryggingafyrirtæki í Evrópu.  Stefnt er að gangsetningu kerfisins um mitt ár 2015 og eru talsverðar væntingar um að það muni skila ávinningi í bættum þjónustuferlum og hagkvæmni í rekstri.  Á árinu hefur jafnframt verið haldið áfram að fjárfesta í innleiðingu á LEAN og hafa stjórnendur sett sér það langtímamarkmið að byggja upp menningu sem grundvallast á stöðugum umbótum og vilja til að gera sífellt betur.  Ávinningur er þegar farinn að skila sér í bættri þjónustu og einföldun í starfseminni.  

 

Ný vátryggingalöggjöf – Solvency II

Félagið vinnur að innleiðingu á væntanlegri löggjöf um vátryggingafélög, Solvency II, sem taka á gildi frá og með 1. janúar 2016. Löggjöfin felur meðal annars í sér umtalsverða breytingu á því hvernig áhætta í starfsemi vátryggingafélaga er mæld og hvernig gjaldþol og gjaldþolskrafa eru ákvörðuð. Gjaldþolskrafa skv. Solvency II er reiknuð sem áhættumiðað mat á heildaráhættu félagsins þ.e. í rekstri félagsins, vátryggingastofni og eignasafni. Megin breyting á reiknuðu gjaldþoli eftir Solvency II felst í að staða vátryggingaskuldar umfram varfærnislegt mat telst til gjaldþols þó að frádregnum tekjuskatti. Þetta hefur í för með sér að gjaldþol félagsins reiknast hærra samkvæmt Solvency II. Félagið hefur reiknað gjaldþol og gjaldþolskröfu miðað við árslok 2014 og er í útreikningum tekið tillit til væntanlegrar arðgreiðslu að fjárhæð 2,5 ma.kr.  Þá reiknaðist gjaldþol skv. Solvency II 15,0 milljarðar króna og

 

gjaldþolskrafa 9,1 milljarðar króna sem gefur gjaldþolshlutfall 1,65. Þessi útreikningur miðast við þær forsendur og upplýsingar sem nú liggja fyrir um væntanlega löggjöf.

 

Samhliða innleiðingu á Solvency II er unnið að því að setja félaginu ný markmið um gjaldþolskröfu, gjaldþol og arðgreiðslustefnu.  Félagið mun upplýsa um niðurstöður þeirrar vinnu þegar henni er lokið og allar nauðsynlegar upplýsingar varðandi nýja löggjöf liggja fyrir.

Tillaga stjórnar til aðalfundar um arðgreiðslu

Stjórn félagsins leggur til að félagið greiði hluthöfum arð sem nemur kr. 1,03 á hlut. Heildarfjárhæð arðgreiðslunnar er um 2.500 milljónir króna. Arðsákvörðunardagur er 12. mars 2015 sem þýðir að skráðir hluthafar í lok dags 16. mars 2015 (arðsréttindadagur) eiga rétt á arðgreiðslu. Arðleysisdagur er því 13. mars 2015 sem er fyrsti viðskiptadagur eftir arðsákvörðunardag og útborgunardagur er 9. apríl 2015.

Tillaga stjórnar til aðalfundar um heimild til kaupa á eigin hlutum

Stjórn félagsins mun leggja það til við aðalfund þess þann 12. mars 2015 að aðalfundur heimili stjórn félagsins að kaupa á næstu átján mánuðum hluti í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess.

Horfur

VÍS leggur áfram áherslu á að sækja og rækta samband sitt við núverandi og nýja viðskiptavini og viðhalda markaðsstöðu sinni.  Áhersla er á áhættumat og rétta verðlagningu vátryggingaráhættu ásamt öflugu forvarnarstarfi til að fækka slysum og tjónum.  Markmið félagsins er að auka ánægju og tryggð viðskiptavina enn frekar á sama tíma og unnið er að því að einfalda og auka skilvirkni í starfsemi félagsins og lækka kostnað.  Markmið félagsins er að samsett hlutfall á árinu 2015 verði undir 100%. Jafnframt er áhersla á trausta langtímaávöxtun á fjárfestingar í samræmi við fjárfestingastefnu félagsins.

Um VÍS

VÍS er leiðandi fyrirtæki á sviði vátrygginga á Íslandi. VÍS nýtur sterkrar stöðu á íslenskum vátryggingamarkaði með liðlega þriðjungs markaðshlutdeild. Félagið býður upp á víðtæka vátryggingaþjónustu til viðskiptavina sinna þar sem rík áhersla er lögð á viðeigandi ráðgjöf um vátryggingavernd, gæði í þjónustu, skilvirkni og sveigjanleika.

 

Meginstarfsemi VÍS er á sviði skaðatrygginga og líftrygginga og starfrækir félagið 32 þjónustuskrifstofur víðsvegar um land.  VÍS leggur áherslu á að starfsmenn og þjónustuaðilar félagsins vinni eftir grunngildum þess sem eru umhyggja, fagmennska og árangur.

Hlutverk VÍS

VÍS er traust, leiðandi og framsækið þjónustufyrirtæki sem veitir viðskiptavinum viðeigandi vátryggingavernd og stuðlar að öryggi í samfélaginu með öflugum forvörnum.

Kynningarfundur

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn hjá VÍS í Ármúla 3, 5. hæð, þann 26. febrúar n.k. kl. 16:15. Þar kynnir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS afkomu félagsins og svarar spurningum.

Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu VÍS: www.vis.is

Fjárhagsdagatal

Viðburður                                Dagsetning:

Ársuppgjör 2014               26. febrúar 2015

Aðalfundur 2015                   12. mars 2015

  1. ársfjórðungur 2015           30. apríl 2015
  2. ársfjórðungur 2015         27. ágúst 2015
  3. ársfjórðungur 2015     29. október 2015

Ársuppgjör 2015               25. febrúar 2016

Aðalfundur 2016                   17. mars 2016

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi fjarfestatengsl@vis.is.


Attachments

Ársreikningur samstæðu 2014.pdf Stjórnarháttayfirlýsing VÍS 2014.pdf Afkoma VÍS 2014.pdf