Landsbankinn hf.: Ársuppgjör 2014


Hagnaður Landsbankans  29,7 milljarðar króna árið 2014

Hagnaður Landsbankans á árinu 2014 nam 29,7 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 28,8 milljarða króna á árinu 2013. Arðsemi eiginfjár eftir skatta á árinu 2014 var 12,5%. Hreinar vaxtatekjur bankans lækkuðu verulega milli ára, eða um 6,2 milljarða króna og vaxtamunur var 2,4% af meðalstöðu heildareigna árið 2014 samanborið við 3,1% árið áður. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi 2014 nam 9,8 milljörðum króna samanborið við 6,5 milljarða króna á sama fjórðungi 2013.

Heildareignir bankans lækkuðu um 53,1 milljarð króna á milli ára og stóðu í árslok í 1.098 milljörðum króna. Útlán jukust um 6% á árinu og voru í árslok 718 milljarðar króna. Aukningin byggist fyrst og fremst á mikilli aukningu í íbúðalánum. Vanskil útlána voru 2,3% í árslok og lækkuðu verulega á árinu. Í samræmi við sett markmið, hefur eign bankans í hlutabréfum, hlutdeildarfélögum og eignum til sölu lækkað verulega á árinu, eða um 27 milljarða króna.

Innlán frá viðskiptavinum voru í árslok 551,4 milljarðar króna og jukust verulega á árinu, en innlán frá fjármálafyrirtækjum minnka að sama skapi[1]. Eigið fé bankans stóð í 250,8 milljörðum króna í árslok og hækkaði um 9,4 milljarða þrátt fyrir að greiddur hafi verið um 20 milljarða króna arður til hluthafa á árinu 2014. Eiginfjárhlutfall bankans (e. Capital Adequacy Ratio) byggir eingöngu á eiginfjárþætti A og var 29,5 í árslok, en var 26,7% í lok árs 2013.

 

Steinþór Pálsson bankastjóri segir:

„Afkoma Landsbankans á árinu 2014 var góð og fjárhagsstaðan er traust. Eiginfjárhlutfallið er með því hæsta sem þekkist meðal banka um víða veröld og lausafjárstaðan með ágætum, þrátt fyrir að bankinn hafi greitt út 20 milljarða króna arð til hluthafa á árinu, töluverðan útlánavöxt og verulega fyrirframgreiðslu inn á skuld bankans við LBI hf.

Bæði útlán og eignir verða æ traustari eins og lækkun vanskila og sala á hlutabréfum og öðrum eignum bera með sér. Fram hjá því verður hins vegar ekki horft að stór hluti af tekjum bankans eru jákvæðar virðisbreytingar af útlánum og hagnaður af hlutabréfum. Einskiptisliðir hafa litað afkomuna á undanförnum árum, en viðbúið er að áhrif þeirra minnki verulega á næstu árum. Landsbankinn stendur frammi fyrir því að nauðsynlegt er að auka hagkvæmni reglubundins rekstrar með lækkun kostnaðar og bættri tekjusamsetningu svo áfram takist að skila ásættanlegri arðsemi á eigið fé bankans.

Endurskipulagningu og leiðréttingu á tugum þúsunda lána sem bankinn tók yfir við stofnun er nú lokið. Þegar allt er talið saman varðandi virðisbreytingar þeirra útlána sem færðust frá LBI hf. til Landsbankans við stofnun hans þá kemur í ljós að hreinar gjaldfærslur í rekstrarreikningi bankans vegna lána til heimila eru rúmir 12 milljarðar króna, eða -7% af kaupverði lánanna, og tekjufærsla vegna lána til fyrirtækja tæpir 25 milljarðar króna, eða +5% af þeim lánum.

Mikilvægur áfangi náðist í desember 2014 þegar samkomulag um breytingar á skuld Landsbankans við LBI hf. tók gildi. Samkomulagið dregur verulega úr endurfjármögnunaráhættu bankans í erlendri mynt og greiðir fyrir því að Landsbankinn geti endurfjármagnað sig á ásættanlegum kjörum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum þegar fram í sækir.

Við erum stolt af því að markaðshlutdeild Landsbankans fer vaxandi og að bankinn skili samfélaginu öllu ávinningi. Skattar vegna ársins 2014 eru um 10,5 milljarðar króna og þá verður lagt til við aðalfund að samþykkt verði að greiða hluthöfum arð að fjárhæð tæplega 24 milljarðar króna. Samanlagðar arðgreiðslur vegna síðustu þriggja rekstrarára munu því nema um 53,5 milljörðum króna.

Framundan eru spennandi tímar við að þróa rekstur Landsbankans, efla þjónustu við heimilin og atvinnulífið og vinna að breytingum á eignarhaldi eins og stærsti eigandi bankans hefur boðað að orðið geti fljótlega.“

 

Helstu stærðir úr rekstri á 4F 2014

  • Hagnaður nam 9,8 milljörðum króna á 4F 2014, samanborið við 6,5 milljarða króna á sama fjórðungi 2013.
  • Arðsemi eigin fjár hækkar talsvert á milli tímabila og var 15,9% á 4F 2014 samanborið við 10,9% á sama ársfjórðungi 2013.
  • Virðisbreytingar útlána voru jákvæðar um 6,1 milljarð á 4F 2014 en námu 3,9 milljörðum á 4F 2013.
  • Hreinar vaxtatekjur lækkuðu milli tímabila og voru 5,8 milljarðar á 4F 2014 en tæpir 10 milljarðar á 4F 2013.
  • Hreinar þjónustutekjur hækkuðu á milli tímabila og voru 1,6 milljarðar króna á 4F 2014 samanborið við 1,2 milljarða á sama tímabili 2013.

 

Helstu stærðir úr rekstri og efnahag árið 2014

Rekstur:

  • Hagnaður Landsbankans nam 29,7 milljörðum króna árið 2014, samanborið við 28,8 milljarða króna árið áður.
  • Arðsemi eigin fjár eftir skatta hækkar lítillega, þrátt fyrir hækkun eiginfjár. Arðsemin var 12,5% árið 2014 samanborið við 12,4% árið 2013.
  • Hreinar vaxtatekjur lækkuðu um 6,2 milljarða króna frá fyrra ári, námu 28,1 milljarði króna á árinu 2014 samanborið við 34,3 milljarða króna á árinu 2013.
  • Vaxtamunur í hlutfalli af meðalstöðu heildareigna lækkaði milli ára, var 2,4% á árinu 2014 en 3,1% árið 2013.
  • Hreinar þjónustutekjur námu 5,8 milljörðum króna og hafa aukist lítillega frá því árið áður.
  • Virðisbreytingar á árinu 2014 voru jákvæðar um 20 milljarða króna á útlánum og 9 milljarða króna á fjáreignum.
  • Að teknu tilliti til verðbólgu hefur raunhækkun rekstrarkostnaðar milli ára verið 5,9%. Markmið bankans var að lækka rekstrarkostnaðinn.
  • Laun og launatengd gjöld hækka um 8% milli ára en sú hækkun skýrist að hluta til af gjaldfærslum vegna starfslokasamninga er gerðir voru á árinu. Rekstrarkostnaður að frátöldum launum og launatengdum gjöldum hækkar um 7%.
  • Kostnaðarhlutfall hækkar á milli ára, var 56,0% fyrir árið 2014 en var 42,9% fyrir árið 2013.
  • Skattar Landsbankans á árinu 2014 voru 10,5 milljarðar króna samanborið við 13,2 milljarða ári fyrr.
  • Stöðugildi í lok árs voru 1.126 og fækkaði um 57 á árinu.

 

Efnahagur:

  • Eigið fé bankans nam í lok árs 2014 um 250,8 milljörðum króna. Það hefur hækkað um 4% frá árslokum 2013 þrátt fyrir 20 milljarða króna arðgreiðslu á árinu.
  • Eiginfjárhlutfall bankans (CAR – Capital Adequacy Ratio) er hátt og vel umfram kröfur Fjármálaeftirlitsins. Það var 29,5% í lok árs 2014 en 26,7% í lok árs 2013.
  • Heildareignir bankans námu 1.098 milljörðum í lok árs 2014. Heildareignir lækka um 5% milli ára og skýrist helst af lækkun á hluta- og skuldabréfaeign bankans og lækkun á skuld við LBI hf.
  • Landsbankinn hefur lánað rúma 162 milljarða króna í ný útlán á árinu en vegna afborgana og styrkingar krónunnar og þar með lækkunar erlendra lána aukast heildarútlán um samtals 38 milljarða króna.
  • Innlán viðskiptavina án fjármálafyrirtækja jukust um 21% á árinu eða um 95 milljarða króna. Hluti af þessari aukningu er tilkominn vegna þess að innlán frá fjármálafyrirtækjum í slitameðferð teljast til almennra innlána frá þeim tíma er Fjármálaeftirlitið afturkallar starfsleyfi þeirra að fullu.
  • Lausafjárstaða bankans er mjög sterk, bæði í erlendri mynt og í íslenskum krónum og vel yfir kröfum eftirlitsaðila. Hlutfall lausafjár af innlánum var 39% í lok árs 2014 en var 50% í lok árs 2013. Heildarlausafjárstaða bankans, sem og lausafjárstaða bankans í erlendri mynt, er jafnframt  vel umfram lausafjárviðmið Seðlabankans.
  • Gjaldeyrisjöfnuður bankans er í góðu horfi og eignir í erlendri mynt eru um 20,3 milljarðar króna umfram skuldir í erlendri mynt.
  • Liðurinn eignir til sölu lækkar um tæpa 7 milljarða króna á árinu og verðmæti hlutabréfa og hlutdeildarfélaga um rúma 20 milljarða.
  • Heildarvanskil hjá fyrirtækjum og heimilum stóðu í 2,3% í lok árs 2014, en í 5,3% á sama tíma árið áður.

 

Helstu þættir í rekstri á árinu

  • Hið alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtæki Standard & Poor‘s (S&P) veitti Landsbankanum í janúar lánshæfiseinkunina BB+ með stöðugum horfum. Í október breytti svo S&P horfum lánshæfiseinkunnar bankans úr stöðugum í jákvæðar og staðfesti ‘BB+/B’ lang- og skammtímaeinkunn bankans.
  • Landsbankinn greiddi arð til eigenda sinna í mars í samræmi við samþykkt aðalfundar og nam hún 70% af hagnaði síðasta árs, eða tæpum 20 milljörðum króna. Arðgreiðslan kom til lækkunar á eigin fé á fyrsta ársfjórðungi.
  • Í mars tók gildi nýtt skipulag útibúa Landsbankans á höfuðborgarsvæðinu og eru öll útibú bankans á því svæði eftirleiðis einstaklingsútibú. Öll viðskipti smærri og meðalstórra fyrirtækja færðust í nýja fyrirtækjamiðstöð í Borgartúni 33.
  • Í júní seldi Landsbankinn 9,9% eignarhlut í FSÍ (Framtakssjóður Íslands) slhf. og allan eignarhlut sinn í IEI slhf., eða sem nemur 27,6%, en í árslok 2013 var FSÍ skipt upp í tvö félög, FSÍ slhf. og IEI slhf. Heildarsöluandvirðið var rúmlega 7 milljarðar króna.
  • Í ágúst skráði Landsbankinn EMTN skuldabréfaramma (Euro Medium Term Note) í kauphöll á Írlandi. Þetta gefur bankanum færi á að gefa út skuldabréf þegar kjör verða hagstæð, að jafnvirði allt að 1 milljarði evra í ýmsum gjaldmiðlum og á föstum eða fljótandi vöxtum.
  • Í september gaf Landsbankinn út nýjan flokk sértryggðra skuldabréfa, LBANK CB 19. Skuldabréfin eru óverðtryggð með föstum 6,8% vöxtum til fimm ára. Fjárhæð útgáfunnar nemur 960 milljónum króna. Fyrr á árinu hafði útgáfa sértryggðra skuldabréfa bankans verið aukin um 1,5 milljarða króna.
  • Í samræmi við sátt sem Landsbankinn gerði við Samkeppniseftirlitið þá hefur bankinn unnið að breytingum á kortamálum sem ætlað er að einfalda og bæta þjónustu við viðskiptavini og tryggja um leið sjálfstæði bankans á þessum markaði. Breytingarnar fólu meðal annars í sér að Landsbankinn seldi meirihlutaeign sína í bæði Valitor og Borgun seinni hluta árs 2014.
  • Í október gerðu óháðir aðilar ytra gæðamat á innri endurskoðun Landsbankans. Niðurstöður gæðamatsins sýna að starfsemi innri endurskoðunardeildar Landsbankans er í samræmi við alþjóðlega staðla og siðareglur en það er besta umsögn sem hægt er að fá í slíku mati samkvæmt aðferðafræði alþjóðlegra samtaka um innri endurskoðun.
  • Í byrjun desember kom til framkvæmda breyting á skilmálum skuldabréfa Landsbankans og LBI hf. sem samið var um í desember 2009. Lokagjalddagi skuldabréfanna verður árið 2026 í stað 2018, rutt er úr vegi íþyngjandi takmörkunum á arðgreiðslur og dregið úr kröfum um veðsetningu eigna.
  • Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti veitti Landsbankanum í desember viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum eftir að hafa bankinn hafði undirgengist úttekt á starfsháttum stjórnar og stjórnenda fyrirtækisins.
  • Mikill vöxtur var í íbúðalánum á árinu og voru ný íbúðalán rúmlega tvöfalt meiri en árið áður.  Íbúðalán eru nú um 66% af útlánum bankans til einstaklinga. Tæplega 40% nýrra íbúðalána á árinu voru óverðtryggð samanborið við um 50% árið á undan. Fjöldi nýrra samninga um lífeyrissparnað þrefaldaðist á árinu 2014 miðað við undangengið ár.
  • The Banker, tímarit á vegum Financial Times, birti í júlí mat sitt á styrk og frammistöðu 1.000 fremstu banka heimsins. Landsbankinn er í 20. sæti í heiminum og 1. sæti í Vestur-Evrópu þegar metinn er fjárhagslegur styrkur.
  • Landsbankinn var eitt fjögurra fyrirtækja sem tilnefnd voru til Menntaverðlauna atvinnulífsins 2014.
  • Landsbankinn var eitt þeirra fimm fyrirtækja sem tilnefnd voru sem markaðsfyrirtæki ársins 2014 að hálfu ÍMARK.
  • Alþjóðlega fjármálaritið Global Finance valdi Landsbankann besta bankann á Íslandi.
  • Alþjóðlega fjármálatímaritið International Finance valdi Landsbankann besta bankann á Íslandi og taldi netbanka Landsbankans besta netbankann.
  • Nýr netbanki var valinn besta þjónustusvæðið þegar Íslensku vefverðlaunin voru afhent í janúar 2015.

 

Nánari upplýsingar veita:

Kolbrún Guðlaugsdóttir, fjárfestatengill, ir@landsbankinn.is og í síma 410 4014

Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 4011

 

[1] Innlán frá fjármálafyrirtækjum í slitameðferð sem misst hafa starfsleyfi að fullu teljast til almennra innlána.

 

 

 

 

 

 


Attachments

Landsbankinn_Fréttatilkynning_Ársuppgjör_2014.pdf Landsbankinn_Kynning_Ársuppgjör_2014.pdf Landsbankinn_Ársreikningur_Samstæðu_2014.pdf