Samkomulag um niðurfellingu máls slitastjórnar SPRON gegn VÍS.


Eins og greint var frá í útgefandalýsingu VÍS höfðaði SPRON mál á hendur VÍS með stefnu dags. þann 18. júlí 2012, þar sem m.a var krafist riftunar á endurgreiðslu SPRON þann 31. október 2008 á 2 ma. kr. peningamarkaðsláni sem VÍS veitti SPRON í september 2008.

Í lýsingu kemur jafnframt fram að Klakki ehf. fyrrum eigandi VÍS ákvað að halda VÍS skaðlausu af tjóni vegna dómsmálsins.  Í því skyni skuldbatt Klakki sig til að auka eigið fé VÍS um allt að 3,5 ma. kr. í því skyni að niðurstaða dómsmálsins hafi ekki áhrif á virði hlutabréfa félagsins („áskriftarskuldbinding“).

Til tryggingar greiðslu fyrrgreindrar áskriftarskuldbindingar lagði Klakki fram ábyrgðaryfirlýsingu útgefna af Landsbankanum sem samsvarar 3,5 ma. kr. VÍS átti að geta krafið Landsbankann um greiðslu á grundvelli ábyrgðarinnar ef Klakki stæði ekki við skuldbindingar sínar um kaup á nýju hlutafé. Þetta er vel útlistað í útgefandalýsingunni á blaðsíðu 24 – 25.

Sérákvæði í tengslum við framangreint skaðleysi var sett í samþykktir félagsins (grein nr. 26).

Þróun málsins hefur síðan jafnt og þétt verið rakin í árshlutareikningum VÍS. 

SPRON og VÍS hafa nú komist að samkomulagi um niðurfellingu málsins. Með samkomulaginu fallast samningsaðilar á að þeir eiga engar frekari kröfur á hendur hvor öðrum hverju nafni sem þær kunna að nefnast. Enginn kostnaður fellur á VÍS vegna samkomulagsins fyrir utan eigin málskostnað.

Af því tilefni hefur stjórn VÍS samþykkt að leysa Klakka ehf. undan áskriftarloforði sínu og bankaábyrgð í tengslum við skaðleysi VÍS af SPRON málinu enda ljóst að engin þörf er fyrir skaðleysið lengur.