Reglubundin tilkynning um kaup Vís á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 9. viku 2015 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 6.000.000 eigin hluti fyrir kr. 56.462.116 eins og hér segir:
           
Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Vís eftir viðskipti
25.2.2015 09:51 1.500.000 9,46 14.190.000 71.776.524
25.2.2015 09:51 1.500.000 9,46 14.190.000 73.276.524
26.2.2015 11:16 1.500.000 9,36 14.040.000 74.776.524
26.2.2015 11:16 1.288.369 9,36 12.059.134 76.064.893
26.2.2015 14:25 211.631 9,37 1.982.982 76.276.524
           
           
Samtals   6.000.000   56.462.116  
           
           
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við nýja endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. desember 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar dags. 28. nóvember 2014.
VÍS hefur nú keypt samtals 21.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 38% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 195.397.116. VÍS á nú samtals 3,05% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 nema áætluninni verður lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.