VIÐSKIPTAYFIRLIT FEBRÚAR 2015 – NASDAQ ICELAND


Reykjavík, 2. mars, 2015 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir febrúar 2015 eru eftirfarandi:

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í febrúarmánuði námu 34.429 milljónum eða 1.721 milljón á dag. Það er 46% hækkun frá fyrri mánuði, en í janúar námu viðskipti með hutabréf 1.181 milljón á dag.  Þetta er 8% hækkun á milli ára (viðskipti í febrúar 2014 námu 1.595 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL) 11.101 milljón, Icelandair Group (ICEAIR) 5.423 milljónir, N1 3.882 milljónir, HB Granda (GRND) 3.374 milljónir og Haga (HAGA) 1.791 milljón.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 0,3% á milli mánaða og stendur nú í 1.377 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 32,5% (28,7% á árinu), Arion banki með 20,7% (21,9% á árinu), og Íslandsbanki með 20,5% (20,5% á árinu).

·         Í lok febrúar voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 736 milljörðum króna (samanborið við 734 milljarða í janúar). 

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 157 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 7,8 milljarða veltu á dag. Þetta er 67% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í janúar námu 4,7 milljörðum á dag), og 6% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í febrúar 2014 námu 7,4 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 128 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 22,5 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 26,7 milljarðar, RIKB 31 0124, 16,5 milljarðar, RIKS 21 0414, 13,8 milljarðar, RIKB 16 1013, 12,9 milljarðar og RIKB 20 0205, 12,8 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 27,2% (25,6% á árinu), Íslandsbanki með 24,4% (19,7% á árinu) og MP banki með 16,2% (15,5% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 1,9% í febrúar og stendur í um 1.105 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,8% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 2,3%. 

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

 

#

Um Nasdaq

Nasdaq  (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,500 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.1 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallin, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing og Nasdaq Broker Services eru vörumerkin fyrir Nasdaq OMX Copenhagen A/S, Nasdaq OMX Helsinki Ltd., Nasdaq OMX Iceland hf., Nasdaq OMX Riga, AS, Nasdaq OMX Stockholm AB, Nasdaq OMX Tallinn AS, Nasdaq OMX Vilnius, Nasdaq OMX Clearing AB, Nasdaq OMX Broker Services AB. Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga og Nasdaq Vilnius.

 

 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsd.
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         525 2844


Attachments

2015_0302_Viðskiptayfirlit febrúar.pdf