Dagsetningu aðalfundar 2015 hefur verið flýtt um einn dag frá því sem kom fram í áður birtu fjárhagsdagatali félagsins þann 18. desember sl., eða fram til fimmtudagsins 26. mars 2015. Einnig hefur verið gerð breyting á aðalfundardegi árið 2016.
Auk þessa þá birtir Sjóvá nú nýtt fjárhagsdagatal þar sem tilteknir eru birtingardagar uppjöra í stað birtingarvikna áður:
Aðalfundur 2015: 26. mars 2015
1. ársfjórðungur 2015 – 12. maí 2015
2. ársfjórðungur 2015 – 27. ágúst 2015
3. ársfjórðungur 2015 – 12. nóvember 2015
4. ársfjórðungur 2015 – 23. febrúar 2016
Aðalfundur 2016: 17. mars 2016
Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.