Sjóvá: Breyting á fjárhagsdagatali

Breyting á aðalfundardögum 2015 og 2016


Dagsetningu aðalfundar 2015 hefur verið flýtt um einn dag frá því sem kom fram í áður birtu fjárhagsdagatali félagsins þann 18. desember sl., eða fram til fimmtudagsins 26. mars 2015. Einnig hefur verið gerð breyting á aðalfundardegi árið 2016.

Auk þessa þá birtir Sjóvá nú nýtt fjárhagsdagatal þar sem tilteknir eru birtingardagar uppjöra í stað birtingarvikna áður:

 

Aðalfundur 2015:  26. mars 2015

1. ársfjórðungur 2015 – 12. maí 2015

2. ársfjórðungur 2015 – 27. ágúst 2015

3. ársfjórðungur 2015 – 12. nóvember 2015

4. ársfjórðungur 2015 – 23. febrúar 2016

Aðalfundur 2016:  17. mars 2016

 

Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.