Aðalfundur VÍS - krafa frá hluthafa um mál á dagskrá

Krafa frá hluthafa um að mál verði tekið á dagskrá, endanleg dagskrá og ályktunartillögur.


Í fundarboði félagsins frá 26. febrúar sl. kemur fram að hluthafar eigi rétt á að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og leggja fram ályktunartillögur ef skrifleg krafa er gerð um það eigi síðar en 2. mars 2015. Er þetta í samræmi við lög um hlutafélög og samþykktir félagsins.

Slík krafa kom fram innan frestsins og er hún meðfylgjandi þessari tilkynningu. Tillagan er þess efnis að 26. gr. samþykkta félagsins verði felld brott í heild sinni enda fjalli hún um heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar í tengslum við mál slitastjórnar SPRON gegn VÍS, en skv. tilkynningu frá félaginu 27. febrúar sl. verður málið fellt niður og því ekki lengur þörf á að hafa þetta ákvæði í samþykktum félagsins. Stjórn félagsins hefur því sett tillögu hluthafans á dagskrá fundarins og breytt ályktunartillögum til samræmis. Endanlegar tillögur og dagskrá fyrir aðalfundinn 12. mars nk. eru að finna í meðfylgjandi viðhengi.


Attachments

Bréf frá hluthafa um ályktunartillögu til aðalfundar.pdf Dagskrá aðalfundar 2015.pdf Ályktunartillögur til aðalfundar.pdf