Reglubundin tilkynning um kaup VÍS á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun. Kaupum skv. endurkaupaáætlun lokið.


 

Í 11. viku 2015 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 4.500.000 eigin hluti fyrir kr. 41.355.000 eins og hér segir:
           
Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Vís eftir viðskipti
9.3.2015 09:30 25.000 9,21 230.250 82.801.524
9.3.2015 09:30 1.475.000 9,21 13.584.750 84.276.524
10.3.2015 09:32 1.500.000 9,18 13.770.000 85.776.524
10.3.2015 09:32 1.500.000 9,18 13.770.000 87.276.524
           
Samtals   4.500.000   41.355.000  

 

Vísað er til tilkynningar Vátryggingafélags Íslands hf. til Aðalmarkaðar um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess, dags. 28. nóvember 2014. Eins og greint var frá í þeirri tilkynningu var áætlað að kaupa að hámarki  2,2% af útgefnu hlutafé félagsins eða sem samsvarar að nafnverði  kr. 55.000.000 hlutum. Samkvæmt áætluninni  skyldi fjárhæð endurkaupanna þó ekki verða hærri en 500 milljónir króna. Reglubundnar tilkynningar til markaðarins um kaup VÍS á eigin bréfum hafa  upplýst um framgang kaupanna. 

Heimild til endurkaupa gilti fram að aðalfundi félagsins 2015 en hann fer fram í dag kl. 16.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar VÍS er nú lokið. Samtals hafa verið keyptir kr. 32.000.000 hlutir að nafnverði í félaginu og nemur kaupverð hinna keyptu hluta samtals kr. 297.707.116. Endurkaupáætlunin var framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi: fjarfestatengsl@vis.is.