Matsfyrirtækið A.M. Best hefur metið fjárhagslegan styrkleika Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) og er einkunnin B++. TM hefur þegar mat á fjárhagslegum strykleika frá matsfyrirtækinu Standard & Poor's (S&P's) og er sú einkunn BBB- en það er sama einkunn og S&P hefur veitt langtímaskuldbindingum íslenska ríkisins. Matseinkunn A.M. Best er samsvarandi við BBB+ einkunn á matskvarða Standard & Poor's. Mat A.M. Best nær einnig til lánshæfis og fær TM lánshæfiseinkunnina bbb+.
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:
„TM hefur frá árinu 2007 verið með styrkleikamat frá S&P, eitt íslenskra tryggingafélaga. Matið veitir TM tækifæri til að sækja vátryggingaviðskipti á erlenda markaði og er því mikilvægur liður í vaxtarmöguleikum félagsins. Mat A.M. Best sem er sérhæft í mati á vátryggingafélögum styrkir frekar stoðir félagsins á því sviði“.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning A.M. Best frá 18. mars um niðurstöður matsins á TM.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM
S: 515-2609
sigurdur@tm.is