Islandsbanki hf. : Aðalfundur Íslandsbanka


Aðalfundur Íslandsbanka var haldinn í dag, miðvikudaginn 25. mars. Friðrik
Sophusson, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar og Birna Einarsdóttir,
bankastjóri, fór yfir uppgjör bankans og helstu þætti í starfsemi hans á árinu
2014. Samhliða var gefin út ársskýrsla fyrir árið 2014.

Helstu niðurstöður aðalfundar

John Mack hættir í stjórn bankans og Eva Cederbalk var kjörin í hans stað.
Stjórnarmenn eru nú eftirtaldir: Friðrik Sophusson, Árni Tómasson, Neil Graeme
Brown, Eva Cederbalk, Helga Valfells og Þóranna Jónsdóttir.

Þá samþykkti fundurinn ársreikning bankans og að greiða 9,0 milljarða króna í
arð til hluthafa bankans vegna rekstrarársins 2014. Á fundinum var einnig
samþykkt að Ernst & Young ehf. verði endurskoðunarfélag bankans til næstu fimm
ára.

 Hægt er að nálgast Ársskýrslu á www.islandsbanki.is/arsskyrsla. Önnur gögn frá
aðalfundi má finna á vef fjárfestatengsla Íslandsbanka, www.islandsbanki.is/ir



Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
440 4752.

Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
440 3678.


[HUG#1906184]