Reykjaneshöfn – Ársreikningur 2014


Meðfylgjandi er ársreikningur Reykjaneshafnar fyrir árið 2014 og fréttatilkynning vegna hans, en ársreikningurinn var lagður fram og samþykktur af hafnarstjórn 25. mars 2015.

 

      Fjárhags-
  2014 2013 áætlun 2014
       
Rekstrartekjur 609.288.355 219.268.626     711.900.000
Rekstrargjöld 181.611.714 169.211.026     234.255.000
Hagnaður fyrir afskriftir 427.676.641   50.057.600     477.645.000
Rekstrarniðurstaða 382.567.203     4.022.709     431.815.000
Tap ársins  ( 103.467.236) ( 650.503.476) (297.210.000)
       
Eignir 31.12. 2014 31.12. 2013 áætlun 2014
Fastafjármunir  2.944.512.856  2.825.105.933   2.746.550.000
Veltufjármunir 334.278.110   38.282.223  312.300.000
Eignir   3.279.790.966   2.863.388.156   3.058.850.000
       
Eigið fé og skuldir 31.12. 2014 31.12. 2013 áætlun 2014
       
Eigið fé ( 4.542.619.565) ( 4.471.542.081) ( 4.502.655.000)
       
Langtímaskuldir og skuldbindingar    7.343.597.143    6.826.486.871  6.904.485.000
Skammtímaskuldir       478.813.388       508.443.366    599.755.000
Skuldir 7.822.410.531 7.334.930.237  7.561.505.000
Eigið fé og skuldir  
3.279.790.966
 
2.863.388.156
 3.058.850.000
       
  31.12. 2014 31.12. 2013 áætlun 2014
       
Handbært fé til rekstrar  (20.174.078) (139.345.125) 388.995.000
Veltufé frá (til) rekstrar      158.473.735    (137.829.018)  278.970.000

 

 

Ársreikningur Reykjaneshafnar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar fjármálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga.

 

Starfsemi Reykjaneshafnar er fjármögnuð með rekstratekjum frá hafnarrekstri og rekin sem fjárhagslega sjálfstætt fyrirtæki í 100% eigu Reykjanesbæjar.

 

Rekstrartekjur hafnarinnar á árinu 2014 námu 609 millj. kr. og rekstrargjöld kr. 182 m.kr. og þar af laun 69 m.kr. samkvæmt  ársreikningi.  Hagnaður fyrir afskriftir 428 m.kr.  Afskriftir 45 m.kr. fjármunatekjur og –gjöld  486 mkr. en tap ársins 103 mkr.

 

Framkvæmdir voru nokkrar á árinu 2014, unnið við fráveitulögn að kísilveralóðum ofl. og fjárfest fyrir 77 m.kr.

 

 

 

Framtíðarsýn:

 

Lóðaúthlutun í Helguvík hefur nánast stöðvast frá árinu 2008 en undirritaður var lóðarsamningur þann 11.04. 2014 við Thorsil ehf. undir kísilverksmiðju. Einnig er reiknað með úthlutunum nýrra lóða á árinu 2015. 

 

Reykjaneshöfn undirritaði 27.4. 2006 hafnarsamning og lóðarsamning í Helguvík við Norðurál. Fyrirhugað er að reisa allt að 270 þúsund tonna álver í áföngum.  Fyrsti áfangi yrði 90 þúsund tonna álver og hófust byggingarframkvæmdir við hann í  maí 2008.  Óvíst er hvenær framleiðsla hefist en vonast að það verði á árinu 2016. 

 

Góðar framtíðarhorfur Reykjaneshafnar.

 

Þrátt fyrir erfiðan rekstur Reykjaneshafnar árið 2014 og skuldir við lánastofnanir sem nema um 4,3 milljörðum króna og víkandi lán Reykjanesbæjar 3 mkr., mun eignastaða Reykjaneshafnar styrkjast á næstu árum.  Það byggir á því að virði lóðargjalda á óúthlutuðum lóðum í Helguvík, samkvæmt gjaldskrá, er um 4,5 milljarðar kr. 

 

Eftir endurfjármögnun langtímalánanna á árinu 2011, þá er áætlað að rekstur hafnarinnar muni komast í jafnvægi á næstu árum með auknum tekjum vegna hafnargjalda, lóðargjalda, lóðarleigu og fasteignarskatta tekjurnar verði hærri en fjármagnskostnaðurinn og höfnin nái að greiða niður skuldir sínar.  Í þeim áætlunum sem unnið var með gagnvart lánveitendum var gert fyrir að byggingarframkvæmdir við kísilver fari af stað sumarið 2014 og rekstur hefjist í byrjun ársins 2016.  En byggingar-framkvæmdir Sameinaðs sílikons hf. hófust haustið 2014 og er áætlað að rekstur hefjist á 2. ársfjórðungi ársins 2016 eins og áætlað var.

 

Forsenda þess að uppbygging á nýrri atvinnustarfsemi í Helguvík geti átt sér stað er að til staðar séu fullnægjandi innviðir, s.s. hafnaraðstaða og vegir. Í þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2014–2017 er tekið fram að ríkisstjórnin muni styðja við frekari uppbyggingu innviða á Helguvíkursvæðinu með sambærilegum hætti og gert var á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Þess má geta að fjárfesting PCC á Bakka er áætluð um 28 milljarðar króna, fjárfestingar Alcoa vegna álversins á Reyðarfirði voru um 140 milljarðar króna og samanlögð fjárfesting Thorsil og United Silicon í Helguvík er áætluð um 40 milljarðar króna.

 

Stjórn og framkvæmdastjóri vænta þess, að með nýjum hafnalögum sem samþykkt voru þann 12. desember 2014, verði orðið við ósk Reykjaneshafnar um ríkisstyrk við framkvæmdirnar í Helguvík á samgönguáætlun 2015 – 2018.  Og Reykjaneshöfn verði veitt ríkisframlag á fjárlögum til að mæta uppbyggingu innviða í Helguvík.

 


Attachments

Ársreikningur Reykjaneshafnar 2014.pdf