Á aðalfundi Sjóvár-Almennra trygginga hf. í dag, 26. mars 2015, voru samþykktar tillögur um arðgreiðslu til hluthafa, starfskjarastefnu félagsins, breytingar á samþykktum, endurskoðunarfélag, þóknun til stjórnar og heimild til kaupa á eigin hlutabréfum með framkvæmd endurkaupaáætlunar.
Stjórn félagsins fyrir næsta starfsár var sjálfkjörin. Hún hefur skipt með sér verkum og er þannig skipuð:
Í aðalstjórn:
Erna Gísladóttir, kt. 050568-2969 , formaður
Heimir V. Haraldsson, kt. 220455-5999
Hjördís E. Harðardóttir, kt. 180464-5819
Ingi Jóhann Guðmundsson, kt. 120169-5729
Tómas Kristjánsson, kt. 151165-3389, varaformaður
Í varastjórn:
Anna Guðmundsdóttir, kt. 130367-3729
Garðar Gíslason, kt. 191066-5539
Í viðhengi er að finna samantekt á helstu niðurstöðum aðalfundar og ársskýrslu Sjóvá vegna ársins 2014.