Hlutafjárlækkun sem samþykkt var á aðalfundi 2015 hefur verið framkvæmd.


Vátryggingafélag Íslands hf. vísar til tilkynningar til Aðalmarkaðar dags. 12. mars 2015 þar sem m.a. var greint frá niðurstöðum aðalfundar.

Aðalfundur 2015 samþykkti m.a. að lækka hlutafé VÍS úr kr. 2.502.757.040 að nafnverði í kr. 2.438.480.516 að nafnverði og að eigin hlutum félagsins að nafnverði kr. 64.276.524 sé þannig eytt.

Hlutafé félagsins hefur nú verið lækkað sem þessu nemur.

Minnt er á að lækkunin hefur engin áhrif á aðra hluti í félaginu en eigin hluti félagsins.