Í framhaldi af samkomulagi milli Landsbankans hf. og stjórnar Sparisjóðs Vestmannaeyja ses. frá 28. mars sl. og ákvörðun Fjármálaeftirlitsins daginn eftir um samruna þessara félaga er boðað við til hluthafafundar í Landsbankanum hf. mánudaginn 4. maí kl. 17:00 í Austurstræti 11, Reykjavík.
Á dagskrá fundarins er:
- Tillaga um ráðstöfun á eigin hlutum
Hluthafafundur samþykkir að Landsbankanum hf. sé heimilt að ráðstafa eigin hlutum til þess að inna af hendi endurgjald vegna kaupa bankans á öðrum fjármálafyrirtækjum hér á landi eða samruna slíkra félaga við bankann.
- Önnur mál
Nánari upplýsingar:
Kolbrún Guðlaugsdóttir, ir@landsbankinn.is 410 4014 eða 862 3679