Fjárfestakynning Nýherja hf. fimmtudaginn 30. apríl kl. 09:00 í ráðstefnusal Nýherja að Borgartúni 37


Nýherji hf. heldur kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna uppgjörs félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2015 fimmtudaginn 30. apríl næstkomandi.

Á fundinum mun Finnur Oddsson forstjóri kynna afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningin fer fram í ráðstefnusal Nýherja á 1. hæð, að Borgartúni 37 og hefst klukkan 09:00.

 

 

Nánari upplýsingar:

Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, í síma +354 862 0310 og
Gunnar Petersen, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs í síma +354 825 9001.