Landsbankinn gefur út nýjan verðtryggðan flokk sértryggðra skuldabréfa, LBANK CBI 22


Landsbankinn lauk í dag sölu á nýjum flokki sértryggðra skuldabréfa. Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og bera fasta 3,0% vexti til sjö ára. Fjárhæð útgáfunnar nemur 1.760 milljónum króna en þar af voru 1.700 milljónir króna seldar til fjárfesta á markaði. Mismunur verður nýttur vegna viðskiptavaktar með bréfin.

Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 28. apríl 2015. Samið hefur verið við Straum fjárfestingabanka um viðskiptavakt með bréfin.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og Reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.

 

Nánari upplýsingar:

Kolbrún Guðlaugsdóttir, pr@landsbankinn.is 410 4014 eða 862 3679