Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2015, miðvikudaginn 29. apríl 2015. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl 2015 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum. Kynningin hefst kl. 16:30 og verður í Þingsal 3. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.
Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni: http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/