VÍS: Birting uppgjörs fyrsta ársfjórðungs þann 30. apríl og kynningarfundur sama dag kl. 16:15


Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs ársins 2015, fimmtudaginn 30. apríl nk. eftir lokun markaðar.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi verður haldinn sama dag, þann 30. apríl nk., kl. 16:15 í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.

Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins: http://vis.is/fjarfestar