Uppgjör 1. ársfjórðungs 2015 - Kynningarfundur 30. apríl 2015


Marel hf. mun birta ársreikning sinn fyrir 1. ársfjórðung 2015 eftir lokun markaðar þann 29. apríl 2015.

Marel boðar til kynningarfundar með markaðsaðilum og fjárfestum, þar sem Árni Oddur Þórðarson, forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins fyrir 1. ársfjórðung 2015.

Kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Austurhrauni 9, Garðabæ.

Fundinum verður einnig netvarpað:
www.marel.com/webcast

Morgunverður frá kl. 8:00.