Rekstur samstæðunnar gekk vel á fyrsta ársfjórðungi og öll félög samstæðunnar skiluðu hagnaði
Nýherji kynnti í dag uppgjör á fyrsta ársfjórðungi 2015. Heildarhagnaður nam 41 mkr og tekjuvöxtur var 14,1% miðað við sama tímabil í fyrra.
Helstu upplýsingar:
- Vöru- og þjónustusala á árinu nam 3.263 mkr [2014:2.859 mkr]
- Heildarhagnaður fyrsta ársfjórðungs nam 41 mkr [2014: 56 mkr]
- Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 114 mkr [2014: 86 mkr]
- EBITDA nam 225 mkr (6,9%) [2014:191 mkr (6,7%)]
- Rekstrarhagnaður nam 147 mkr [2014: 116 mkr]
- Framlegð nam 808 mkr (24,8%) [2014: 753 mkr (26,3%)]
- Jákvæð rekstrarafkoma var hjá öllum félögum samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi
- Tekjuvöxtur 14,1% frá sama tímabili í fyrra
Finnur Oddsson, forstjóri:
„Rekstur samstæðu Nýherja gekk vel á fyrsta ársfjórðungi og öll félög samstæðunnar skiluðu hagnaði. Samstæðan hefur nú skilað heilbrigðum hagnaði 5. ársfjórðunginn í röð, sem sýnir í reynd aukinn stöðugleika í rekstrinum. Töluverður tekjuvöxtur var frá sama tímabili í fyrra, sérstaklega hjá Nýherja og Tempo. Afkoma nú er lítillega yfir áætlunum. Við vinnum áfram að því að festa nýtt skipulag sem tók gildi síðasta haust í sessi og ná þeim markmiðum sem félagið setti sér um einfaldara skipulag, skilvirkara sölustarf og bætta þjónustu.“