Sjóvá: Leiðrétting við frétt 2015-05-13 10:31:44


Komið hefur í ljós villa í fjárfestakynningu félagsins sem birt var í morgun í viðhengi með ofangreindri frétt. Við tilgreiningu rekstrarkostnaðar á glæru 4 í kynningu var hann sagður 897 m.kr. en er 1.012 m.kr. (1F 2015) og fyrra ár sagt vera 966 m.kr. en er 1.084 m.kr. (1F 2014). 

Þetta hefur nú verið leiðrétt í meðfylgjandi fjárfestakynningu í viðhengi, sem hefur það og í för með sér að neðsta setningin á glæru 4 þar sem sagði: "Rekstrarkostnaður dróst saman um 7,2%" verður "Rekstrarkostnaður dróst saman um 6,6%".


Attachments

Sjóvá - Fjárfestakynning 3M 2015.PDF