N1 hf : Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2015 þann 27. maí 2015


N1 birtir uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2015 eftir lokun markaða miðvikudaginn 27. maí næstkomandi.

Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 28. maí 2015 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 -14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri N1 mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum.

Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu N1: www.n1.is/fjarfestatengsl