HFJ 14 1 - Vextir á skuldabréfum Hafnarfjarðarkaupstaðar hækka


HFJ 14 1  - Vextir á skuldabréfum Hafnarfjarðarkaupstaðar hækka um 0,5%

Fjárhagslegum skilyrðum um að veltufé frá rekstri á móti heildartekjum nemi  lágmark 10% var ekki náð samkvæmt ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2014. Vextir á gjalddaga til greiðslu þann 20. nóvember 2015 og þar til að skilyrðum verður náð munu því hækka um 0,5% og verða 4,25%. Útgefin bréf  nema um kr. 5,5 milljörðum og nemur því hækkunin um kr. 13,8 milljónum á hvern gjalddaga.

 

Nánari upplýsingar veitir:

 

Rósa Steingrímsdóttir, fjármálastjóri í síma 664 5514

HUG#1923839