Aðalmiðlarasamningar og viðskiptavakt vegna skuldabréfaflokka RVK 53 1 og RVK 19 1

Reykjavíkurborg endurnýjar samninga við Arion banka, Íslandsbanka, Landsbanka, MP banka, og Straum fjárfestingarbanka um viðskiptavakt með skuldabréf


Þann 4. júní 2015 samþykkti borgarráð endurnýjaða samninga um viðskiptavakt á skuldabréfaflokkum Reykjavíkurborgar með auðkennið RVK 53 1 og RVK 19 1 sem, skráðir eru í Kauphöll. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Reykjavíkurborgar að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.

Frá og með 25. maí 2015 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: „Aðalmiðlara með skuldabréf Reykjavíkurborgar“. Þær eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf., MP banki hf., og Straumur fjárfestingarbanki hf.

Helstu atriði samningsins eru:

  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Reykjavikurborgar.
     
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til að leggja fram tilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði.
     
  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Reykjavíkurborg veitir.
     
  • Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 53 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. 
     
  • Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 19 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 20 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. 
     
  • Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal aldrei vera meiri en 1%.
     
  • Viðskiptavaki skal endurnýja tilboð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið.
     
  • Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 150 m.kr. að nafnvirði með RVK 53 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
     
  • Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 60 m.kr. að nafnvirði með RVK 19 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.

 

Viðskiptavakt Arion banka hf., Íslandsbanka hf., Landsbanka hf., MP banka hf., Straums fjárfestingarbanka hf. gildir frá og með 25. maí 2015 til 24.maí 2016.

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111

 

 


Attachments

Aðalmiðlarasmningur RVK 2015.pdf