Stækkun á skuldabréfaflokki HSVE 13 01 og taka til viðskipta


Eins og fram kom í tilkynningu HS Veitna þann 12. mars 2015 gaf félagið út nýjan skuldabréfaflokk HSVE 15 01 til bráðabirgða með það fyrir augum að stækka HSVE 13 01 þegar staðfest lýsing lægi fyrir. Þann 19. júní birti félagið tilkynningu um staðfestingu lýsingar fyrir HSVE 13 01.

Í samræmi við framangreint hafa HS Veitur nú lokið við stækkun flokksins  HSVE 13 01 og afhent bréfin í skiptum fyrir bréf í flokknum HSVE 15 01 sem í kjölfarið verður felldur niður. Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.

H.F. Verðbréf hf. hefur umsjón með töku skuldabréfanna til viðskipta.

Nánari upplýsingar veitir:

Júlíus Jónsson, forstjóri HS Veitna hf.

Sími: 860 5208