Í 28. viku 2015 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.099.995 eigin hluti fyrir kr. 11.754.803 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Sjóvá eftir viðskipti |
8.7.2015 | 15:08:13 | 19.066 | 10,65 | 203.053 | 19.066 |
8.7.2015 | 15:29:22 | 780.934 | 10,70 | 8.355.994 | 800.000 |
9.7.2015 | 09:36:39 | 219.075 | 10,65 | 2.333.149 | 1.019.075 |
10.7.2015 | 11:01:10 | 19.075 | 10,66 | 203.340 | 1.038.150 |
10.7.2015 | 11:27:44 | 42.770 | 10,66 | 455.928 | 1.080.920 |
10.7.2015 | 14:54:32 | 19.075 | 10,66 | 203.340 | 1.099.995 |
Samtals | 1.099.995 | 11.754.803 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015.
Sjóvá hefur nú keypt samtals 1.099.995 hluti í félaginu sem samsvarar 2,75% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 11.754.803. Sjóvá á nú samtals 0,07% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.