Í 33. viku 2015 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.087.070 eigin hluti fyrir kr. 12.766.719 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Sjóvá eftir viðskipti |
12.8.2015 | 12:14:11 | 800.000 | 11,76 | 9.408.000 | 7.560.797 |
13.8.2015 | 13:00:04 | 19.066 | 11,70 | 223.072 | 7.579.863 |
14.8.2015 | 12:44:39 | 229.872 | 11,70 | 2.689.502 | 7.809.735 |
14.8.2015 | 13:39:50 | 38.132 | 11,70 | 446.144 | 7.847.867 |
Samtals | 1.087.070 | 12.766.719 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015.
Sjóvá hefur nú keypt samtals 7.847.867 hluti í félaginu sem samsvarar 19,62% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 88.519.923. Sjóvá á nú samtals 0,49% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.