Vátryggingafélagi Íslands hf. hefur borist tilkynning frá Steinari Þór Guðgeirssyni, stjórnarmanni, um úrsögn úr stjórn félagsins frá og með deginum í dag.
Eftirfarandi skipa þá stjórn félagsins:
Aðalmenn
Ásta Dís Óladóttir
Bjarni Brynjólfsson
Guðrún Þorgeirsdóttir
Helga Jónsdóttir
Varamenn
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir
Davíð Harðarson
Stjórn félagsins er ákvörðunarbær, sbr. 71. gr. laga um hlutafélög.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi fjarfestatengsl@vis.is.