VÍS: Birting uppgjörs annars ársfjórðungs og kynningarfundur


Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör annars ársfjórðungs ársins 2015, fimmtudaginn 27. ágúst nk. eftir lokun markaðar.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins verður haldinn föstudaginn 28. ágúst nk., kl. 08:30 í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.

Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins: http://vis.is/fjarfestar