Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör annars ársfjórðungs ársins 2015, fimmtudaginn 27. ágúst nk. eftir lokun markaðar.
Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins verður haldinn föstudaginn 28. ágúst nk., kl. 08:30 í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.
Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins: http://vis.is/fjarfestar