Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör annars ársfjórðungs 2015 eftir lokun markaða fimmtudaginn 27. ágúst og bjóða markaðsaðilum á kynningarfund kl. 16.00 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð.
Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.
Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef Sjóvár www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á vefnum á slóðinni www.sjova.is/afkomukynningar.