Sjóvá hagnaðist um 1.380 m.kr. á fyrri helmingi ársins 2015
- Afkoma af vátryggingastarfsemi nam 271 m.kr.
- Afkoma af fjárfestingarstarfsemi nam 1.415 m.kr.
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Afkoma Sjóvár á fyrri árshelmingi var góð og munar þar mestu um afar góða afkomu af fjárfestingareignum sem var mun hærri en alla jafna má vænta. Vöxtur var í iðgjöldum og kostnaðarhlutfall lækkaði. Hátt tjónahlutfall sem einkenndi fyrsta ársfjórðung m.a. vegna óveðurstjóna, hélst áfram hátt á öðrum ársfjórðungi. Þar er skýringa að leita bæði í slæmu tíðarfari á fyrri hluta fjórðungsins en mikil aukning ferðamanna og almennt stóraukin bílaumferð hafa einnig áhrif.“
Annar ársfjórðungur:
Afkoma
- Hagnaður af rekstri Sjóvár á öðrum ársfjórðungi nam 756 m.kr. (0,47 kr. á hlut)
- Hagnaður fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna nam 887 m.kr.
- Afkoma af vátryggingastarfsemi nam 216 m.kr.
- Afkoma af fjárfestingarstarfsemi nam 658 m.kr.
- Samsett hlutfall samstæðunnar var 100,8%
Efnahagur
- Eigið fé nam 15.193 m.kr.
- Fjárfestingareignir án söfnunarlíftrygginga námu 29.282 m.kr.
- Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 34,3%
- Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 18,3%
- Gjaldþolshlutfall móðurfélagsins var 4,97
Fjárfestingar
Félagið greiddi út arð á ársfjórðungnum og því minnkaði laust fé. Félagið bætti við sig í hlutabréfum og óverðtryggðum skuldabréfum en seldi lengri verðtryggð skuldabréf. Ávöxtun eignasafnsins var 2,6% á fjórðungnum, ávöxtun skráðra hlutabréfa var 10% og ávöxtun ríkisskuldabréfa 0,7%.
Horfur
Í upphafi árs kynnti Sjóvá horfur í rekstri ársins 2015. Félagið hefur náð að vaxa að raungildi eins og að var stefnt. Tjónshlutfall er töluvert hærra en gert var ráð fyrir og ekki eru taldar líkur á að markmið ársins um samsett hlutfall náist. Fjárfestingartekjur eru það sem af er ári töluvert hærri en áætlað var. Ekki er gerð breyting á áætlaðri afkomu, þ.e. á bilinu 2.000 til 2.600 m.kr. fyrir skatta, en hún mun að miklu leyti ráðast af afkomu af fjárfestingarstarfsemi síðari hluta ársins.
Afkoma (m.kr.) | 2F 2015 | 2F 2014 | Breyting | 6M 2015 | 6M 2014 | Breyting | |
Eigin iðgjöld tímabilsins | 3.310 | 3.174 | 4,3% | 6.610 | 6.271 | 5,4% | |
Fjárfestingartekjur | 963 | 317 | 203,8% | 2.003 | 258 | 676,4% | |
Heildartekjur | 4.273 | 3.491 | 22,4% | 8.613 | 6.529 | 31,9% | |
Eigin tjón tímabilsins | -2.514 | -2.074 | 21,2% | -5.134 | -4.161 | 23,4% | |
Rekstrarkostnaður | -873 | -915 | -4,6% | -1.769 | -1.880 | -5,9% | |
Afskriftir óefnislegra eigna | -116 | -117 | -0,9% | -231 | -234 | -1,3% | |
Heildarkostnaður | -3.503 | -3.106 | 12,8% | -7.134 | -6.275 | 13,7% | |
Hagnaður | 756 | 329 | 129,8% | 1.380 | 205 | 573,2% | |
Hagnaður á hlut (kr.) | 0,47 | 0,21 | 0,87 | 0,13 | |||
Hagnaður fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna | 887 | 503 | 76,3% | 1.710 | 487 | 251,1% | |
Hagnaður af vátryggingastarfsemi | 216 | 474 | -54,4% | 271 | 792 | -65,8% | |
Efnahagur | |||||||
Eigið fé | 15.193 | 17.810* | 15.193 | 17.810* | |||
Fjárfestingareignir án söfnunarlíftrygginga | 29.282 | 30.827* | 29.282 | 30.827* | |||
Eigin vátryggingaskuld | 22.915 | 20.914* | 22.915 | 20.914* | |||
Lykiltölur úr rekstri - hlutföll | 2F 2015 | 2F 2014 | 6M 2015 | 6M 2014 | |||
Samsett hlutfall samstæðu | 100,8% | 91,5% | 102,5% | 94,0% | |||
Eiginfjárhlutfall samstæðu | 34,3% | 40,2%* | 34,3% | 40,2%* | |||
Ávöxtun eigin fjár á ársgrundvelli | 18,3% | 7,9% | 16,7% | 2,4% | |||
Ávöxtun eigin fjár leiðrétt f. óefnisl. eignum og afskriftum |
30,0% | 12,9% | 24,1% | 5,8% |
*31.12.2014
Kynningarfundur
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi 2015 fimmtudaginn 27. ágúst kl. 16:00 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar
Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson í síma 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is.
Samstæðureikningur Sjóvár fyrir annan ársfjórðung var samþykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 27. ágúst 2015. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.