Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins Arion Bank Mortgages Institutional Investor Fund (ABMIIF) árið 2015


Fagfjárfestasjóðurinn ABMIIF sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 1.333 millj. Kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Hrein eign sjóðsins í árslok 2014 nam 22.315 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2015, efnahagi hans 30. júní 2015 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2015, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar um árshlutareikning ABMIIF veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7464.


Attachments

20150630_ABMIIF_SIGN.pdf