Reglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 

Í 35. viku 2015 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 2.437.232 eigin hluti fyrir kr. 30.046.331 eins og hér segir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Sjóvá eftir viðskipti
24.8.2015 11:41:22 800.000 12,31 9.848.000 8.679.083
25.8.2015 12:28:52 19.066 12,11 230.889 8.698.149
26.8.2015 11:37:50 800.000 12,38 9.904.000 9.498.149
27.8.2015 11:49:07 18.166 12,3 223.442 9.516.315
28.8.2015 12:21:56 800.000 12,3 9.840.000 10.316.315
Samtals   2.437.232   30.046.331  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015.

Sjóvá hefur nú keypt samtals 10.316.315 hluti í félaginu sem samsvarar 25,79% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 118.931.481. Sjóvá á nú samtals 0,65% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.