Í 35. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 334.414 eigin hluti fyrir 24.062.222 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskipta-verð | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
24.8.2015 | 10:52 | 250.000 | 71,60 | 17.900.000 | 2.716.336 |
28.8.2015 | 11:45 | 84.414 | 73,00 | 6.162.222 | 2.800.750 |
Samtals | 334.414 | 24.062.222 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015.
Reitir hafa nú keypt samtals 2.800.750 hluti í félaginu sem samsvarar 8,24% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 190.939.064 krónum. Reitir eiga nú samtals 0,37% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.