Árshlutareikningur Kópavogsbæjar 1. janúar til 30. júní 2015 og greinargerð

Árshlutareikningur Kópavogs lagður fram


Rekstrarniðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar á fyrri hluta árs var í samræmi við fjárhagsáætlun. Að jafnaði kemur rekstur fyrri hluta árs verr út en á seinni hluti vegna þess að á fyrri hluta árs falla aðeins um 48-49% af skatttekjum ársins en stærri hluti útgjalda á ákveðnum sviðum. Gert hafði verið ráð fyrir 117 milljón króna tapi á tímabilinu en niðurstaðan varð 128 milljón króna tap. Skýringin er einkum lægri skatttekjur en áætlað hafði verið, líkt og hjá öðrum sveitarfélögum.

Þetta kemur fram í árshlutareikningi Kópavogs fyrir 1. janúar til 30. júní 2015 sem lagður var fram í bæjarráði í dag, 3. september.

„Miðað við árferði þá erum við nokkuð sátt. Launaáætlun gengur eftir í stórum dráttum og þá höfum við nú rétt eins og undanfarin ár lagt áherslu á aðhald í rekstri. Hins vegar þá óttast ég bakreikninga vegna nýrra kjarasamninga, breytinga á starfsmati og endurreiknaðra lífeyrisskuldbindinga sem munu hafa áhrif á niðurstöðu ársreiknings Kópavogsbæjar,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar.

Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði, afskriftir og lífeyrisskuldbindingar var jákvæð um 1.895 milljónir króna. Þetta þýðir að framlegðarhlutfall samstæðu var um 16,3% en í reglum frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga er gert ráð fyrir að framlegðarhlutfallið sé á bilinu 15-20 %.


Attachments

Greinargerð-06-2015.pdf 0-6Mán-Samstæða-2015.pdf