Landsvirkjun skrifaði í dag undir sambankalán í íslenskum krónum til sjö ára að fjárhæð 12 milljarðar króna (jafnvirði um 93 milljóna USD). Lánið er veltilán og getur fyrirtækið dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum. Með lántökunni endurfjármagnar Landsvirkjun eldra sambankalán frá árinu 2011.
Íslandsbanki, ásamt Arion banka og Landsbankanum veita lánið sem samanstendur af jöfnum hlut frá bönkunum þremur, 4 milljarðar hver hlutur. Íslandsbanki sá um skjalagerð og umsýslu við lánveitinguna fyrir hönd Landsvirkjunar.
Markmið lántökunnar er að Landsvirkjun hafi ávallt tryggan og greiðan aðgang að fjármögnun í íslenskum krónum.
Reykjavík, 9. september 2015
Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515-9000, netfang: rafnar@lv.is